Ha, sigraði hún?

Í frétt þar sem fram kemur að stúlkan hafi verið í öðru sæti á mótinu spyr blaðamaður síðan eftirfarandi spurningar:

Kom sigurinn þér á óvart?

Kannski hef ég alltaf misskilið orðið 'sigur' en ég hélt að til að sigra á móti verði maður að vera í fyrsta sæti.Annað sætið er að sjálfsögðu frábær árangur og óska ég Margréti til hamingju með hann en ég held að ekki sé hægt að segja að hún hafi sigrað á mótinu. Alla vega sigraði ég aðeins á þeim skíðamótum í gamla daga þar sem ég var í fyrsta sæti.


mbl.is Dóttir Jóns Gnarr lenti í 2. sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Já sæl Kristín þetta er skrítin frétt það verð ég að segja og sú sem sigraði er ekki einu sinni nefnd á nafn...

Með fullri virðingu fyrir Margréti og megi hún njóta sigurs í að hafa orðið í öðru sæti þá er þessi frétt algjör vanvirðing við sigurvegarann sem er eins og ég segi ekki nefnd á nafn...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 7.11.2011 kl. 08:07

2 Smámynd: Þorsteinn J Þorsteinsson

Madur tapar Gulli en vinnur ekki slilfur,med allri virdingu fyrir konuni ta held eg ad adalatridid fyrir frettamannin i tessari frett var ad Hun er dottir Jona Gnarr,enda ekki mynst a sigurvegarin

Þorsteinn J Þorsteinsson, 7.11.2011 kl. 16:06

3 identicon

Þú yrðir sjálf örugglega frábær í Fitness, spurning um að prófa það?

Magnús Geir (IP-tala skráð) 12.11.2011 kl. 18:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband