Selur á barnaveiðum

Í gær gerðist undarlegur atburður á bryggju hér í Vestur Vancouver. Lítil fimm ára gömul stúlka hafði verið að veiða með pabba sínum. Pabbinn var að ganga frá sjólaxinum sem þau höfðu veitt en sú litla stóð við hliðina á félaga pabba síns og syni hans. Allt í einu hífir risastór selur sig upp á bryggjuna, bítur í handlegg stúlkunnar og dregur hana út í sjóinn. Hún var sem betur fer enn í björgunarvesti svo það var erfitt fyrir selinn að ná henni undir svo hann gafst loks upp og hægt var að bjarga þeirri stuttu. Selir eiga það víst til að grípa hunda á bryggjunni en ekki er vitað til þess áður að þeir hafi krækt sér í börn.

Á myndinni má sjá föður stúlkunnar á þeim stað þar sem selurinn krækti í hana.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sá thessa fyrirsögn thína á forsídu Mbl.....gaf ekki fallegar "hugarmyndir".  Gott ad hún reddadist...vonandi er ekki handleggurinn skadadur eda thad sem selurinn beit í....kom thad fram?

Dolli (IP-tala skráð) 4.9.2009 kl. 08:31

2 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Hún slapp vel. Er með fjögur stungusár á hönd eftir tennurnar. Vanalega hugsar maður ekki um seli á þennan hátt.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 4.9.2009 kl. 08:49

3 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Stungusárin voru víst fimm. Og svona er selurinn:

Kristín M. Jóhannsdóttir, 4.9.2009 kl. 08:51

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Nei, svona hugsar maður ekki venjulega um seli, allavega ekki þeir sem á unga aldri lásu um raunir litla kópsins Snorra og eiga þær ágætu bókmenntir á góðum stað upp í hillu!

Líkamlegu sárin nei ekki slæm, en ansi er ég nú hræddur um að andlega hliðin hjá litla tetrinu geti orðið lengur að jafna sig.

Magnús Geir Guðmundsson, 4.9.2009 kl. 21:43

5 identicon

Selurinn Snorri eftir Frithjof Sælen er eiginlega dulbúinn sem barnabók

Enda bönnuðu Þjóðverjar hana fljótlega eftir að hún kom út 1941.

Eyjólfur Ármannsson (IP-tala skráð) 4.9.2009 kl. 23:21

6 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Ég elskaði söguna um Snorra þegar ég var barn. Hann var svo fallegur og saga hanns svo dásamleg en á sama tíma svo óttaleg. En best var að hann lærði á mistökum sínum.

Ég man að ég sagði fyrrverandi kærasta mínum frá þessari sögu og mamma sendi honum svo bókina (á íslensku) svo ég þýddi hana fyrir hann um leið og ég las (Tim er kanadískur). Fyndnast var þó þegar ég var að tala um eitthvað sem gerðist þegar ég var í menntaskóla og minntist á Snorra skólabróður minn. Þá hló Tim mikið og sagði: Heitir hann Snorri eins og selur!

En þetta er allt önnur Ella enda heitir hún Elín og er kölluð....Ella.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 5.9.2009 kl. 02:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband