Þoli ekki þegar dómarar gera út um leiki
20.4.2010 | 02:37
Það er óþolandi þegar slök dómgæsla gerir út um leik í íþróttum. Þetta er auðvitað alltaf að gerast en er verst þegar það virðist ekki vera tilviljun hvar slæma dómgæslan lendir. Undanfarna daga hafa til dæmis verið háværar raddir um það í Kanada að það hafi ekki verið einleikið hvernig öll kanadísku liðin lentu í því í annarri umferð úrslitakeppninnar í hokkí að slök dómgæsla kostaði þau leikinn. Öll höfðu liðin unnið sinn fyrsta leik og annar sigur hefði þýtt tvö-núll stöðu gegn amerískum liðum.
Verst fór þetta í leik Vancouver og Los Angeles á laugardaginn. Eftir góða 2-0 byrjun náði Vancouver að glopra leiknum í jafntefli og framlengingu. Í framlengingunni gerði dómarinn út af við leikinn. Kevin Bieksa, leikmaður Vancouver, lenti í samstuði við einn leikmanna LA og skarst illa. Hann missti fjölda leikja í vetur þegar skauti skar í gegnum hásinina hjá honum og flýtti sér því að velli þegar hann var skorinn. Reglan er sú að við skiptingu má maður koma inná völlinn áður en hinn er kominn út af, en sá sem kom inná má ekki snerta pökkinn fyrr en hinn er kominn útaf. Þegar Bieksa nálgast bekkinn stekkur Christian Ehroff inn á völlinn, varnarmaður LA reynir að senda pökkinn upp eftir fjölunum og hittir pökkurinn Bieksa á leiðinni útaf. Ehroff kemur ekki við pökkinn, það er leikmaðurinn á leið útaf, sem er meiddur í þokkabót. Og hvað gerir dómarafjandinn? Hann dæmir á Vancouver fyrir of marga menn á vellinum, og það þýddi tveggja mínútna brottvísun. LA skoraði manni fleiri og jafnaði leikinn. Algjörlega fáránlegur dómur og dómarinn vann þennan leik fyrir LA. Svona má maður ekki gera í bráðabana. Vanalega passa dómarar sig betur í þannig stöðu.
Og hvers vegna hafa menn þessar samsæriskenningar um að NHL deildin reyni að koma í veg fyrir að of mörg kanadísk lið komist áfram? Af því að hokkí er svo vinsælt í Kanada að þeir munu horfa á keppnina hver sem er að spila. Bandaríkjamenn, aftur á móti, vilja eingöngu horfa á sín eigin lið, og það þýðir að þeim mun fleiri bandarísk lið eru í keppninni þeim mun meira áhorf á hokkí í Bandaríkjunum og þar af leiðandi meiri peningar frá auglýsingum. Það er allt gert til að auka áhorfið sunnan við landamærin og ef það þýðir að dómarar þurfa að hjálpa amerísku liðunum aðeins þá gera þeir það.
Annars ætti ekki að þurfa að hjálpa þeim. Montreal og Ottawa hafa ekkert sérlega gott lið í ár og munu detta út án hjálpar dómara, og Vancouver, þrátt fyrir að vera með besta kanadíska liðið í ár, er að öllum líkindum ekki með nógu gott lið til að komast alla leið að þessu sinni. Þannig að dómararnir geta bara haldið sig við að dæma þokkalega.
Annars er Vancouver að spila þriðja leikinn gegn LA í kvöld. Staðan er 1-0 fyrir okkur. Leikið er í LA að þessu sinni. Vonandi vinnum við í kvöld, og helst á miðvikudaginn líka svo við þurfum ekki að spila of marga leiki og koma þreytt í aðra umferð sem væntanlega verður gegn Chicago. Þeir slógu okkur út í annarri umferð í fyrra svo við eigum mikils að hefna.
Athugasemdir
Ég get nú þegar bætt við. Við töpuðum í kvöld. Ekki var það allt dómurum að kenna en þegar staðan var 4-2 skoraði Vancouver mark sem var dæmt af. Sagt var að pökknum hafi verið sparkað í markið. Þetta var sýnt aftur og aftur og það er augljóst að það er ekki rétt. Daniel Sedin kemur á ferð að markinu og setur fram hægri skautann til þess að stoppa sig af, rétt eins og varnarmaðurinn með honum. Samuelson skýtur pökknum fyrir framan markið, hann hittir skauta Daniels og fer inn. Það er augljóst á öll að Daniel sparkar ekki í pökkinn og samkvæmt hokkíreglum á markið því að vera gilt. Þeir sem lýstu leiknum áttu ekki til orð.
Kristín M. Jóhannsdóttir, 20.4.2010 kl. 05:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.