Ég sé af hverju

Það er nú bara af því að hann er algjör dúlla að sjá þessi Jyrki Katainen. Jafnvel ég myndi freistast til að kjósa hægrimenn ef þeir litu svona út hér. Bara til að  geta horft á eitthvað fallegt þegar verið væri að sýna frá Alþingi. Annars er forsætisráðherra þeirra Finna ekki ófríður að sjá heldur. Mikið er gaman hjá Finnum.

Lítið svo á það sem okkur stendur til boða.


mbl.is Hægrimenn sigurvegarar kosninganna í Finnlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Nú ertu ósanngjörn, margir íslenskir þingmenn eru sætir! Og greindir. Og mælskir. Fullir sannfæringarkrafts. Heiðarlegir. - Þú ert bara búin að vera of lengi í Kanödu.

Berglind Steinsdóttir, 19.3.2007 kl. 00:32

2 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Kannski leynist einn og einn inn á milli sem allt í lagi er að horfa á. Kannski er ég bara að hugsa um leiðtoga hægri flokkanna okkar síðastliðin tuttugu ár. Ja, leiðtoga flestra flokka!

Kristín M. Jóhannsdóttir, 19.3.2007 kl. 01:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband