Fann Íslending í fótboltabúð

Áðan fór ég í fótboltaverslun til að kaupa nýjar legghlífar þar sem mínar eru farnar að detta í sundur. Ungur afgreiðslumaður kom að hjálpa mér og við spjölluðum svolitla stund um mismunandi gerðir af hlífum. Eftir smátíma spurði hann mig: Ertu þýsk? Nei, ég sagðist vera íslensk. Þá glaðnaði yfir honum, hann lyfti upp hægri hendi og sagði: Give me five! Me too. Hann leiðrétti sig reyndar strax og sagðist auðvitað ekki vera Íslendingur, en afi hans og amma hefðu verið það. Þetta leiddi til langrar umræðu um Ísland og Íslendinga og hann hefur greinilega áhuga á forfeðrunum því hann hefur lesið helling um landið og vissi margt. Hann sagði mér líka að hann langaði svo að kaupa íslensku landsliðspeysuna í fótbolta en hjá eina staðnum á netinu sem selur slíkar (og sem hann hafði fundið) var peysan uppseld. Ég sagði að mig hefði alltaf langað meir í landsliðspeysuna í handbolta sem er yfirleitt flottara en hana hef ég aldrei séð í almennri sölu. Fótboltapeysuna sá ég hins vegar í alla vega tveimur búðum í Reykjavík, ef ekki víðar. Spurningin er hins vegar hvernig hægt er að kaupa þær þegar maður býr erlendis.

Þetta var hinn notalegasti ungi maður og hann gaf mér afslátt af legghlífunum þegar ég borgaði, sem var auðvitað afbragð.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Þú færð allar treyjur á góðu verði á

www.treyjur.is   

gunnar g (IP-tala skráð) 6.6.2007 kl. 00:05

2 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Alveg ótrúlega gaman að hitta Íslending í útlöndum (kannski ekki á Strikinu eða á Mæjorka), sérstaklega svona Íslending eins og þú hittir! 

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 6.6.2007 kl. 00:11

3 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Takk kærlega Gunnar. Tékka á því. Gurrí, þessi heimur er ótrúlega lítill og alveg furðulegt hvar maður rekst á fólk.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 6.6.2007 kl. 05:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband