???

Og bíddu....í hverju eiga þeir að keppa? Hvers lags frétt er þetta sem segir manni eiginlega ekki neitt? Eiga þeir að keppa í einhverjum íþróttum? Frjálsum? Fótbolta? Eða einhverju sem er oftar tengt "nördum", eins og stærðfræði og eðlisfræði? Ég verð nú bara pirruð þegar ég les hálfar fréttir.
mbl.is Sænskir og íslenskir nördar keppa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er nú svona nokkuð augljóst í hverju það er þótt maður sé illa að sér í íþróttum almennt. Fótbolti skal það vera. En samt sem áður einstaklega léleg frétta þarna á ferð, þar sem maður á að geta lesið þetta sem algjör bjáni og skilið eða því sem næst. Þarna er það ekki hægt allavega, held samt sem áður að þú hafir nú alveg náð þessu ;) hehe 

Frelsisson (IP-tala skráð) 4.7.2007 kl. 17:02

2 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Jú, sennilega er það rétt að vanalega er um fótbolta að ræða þegar það er ekki tekið fram sérstaklega um hvaða íþrótt er verið að tala. Það er eins og fótbolti sé nokkurs konar 'default' íþrótt. Annars tengi ég nú alltaf fyrst og fremst frjálsar íþróttir við Landsmót ungmennafélaganna, ekki fótbolta.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 4.7.2007 kl. 17:44

3 Smámynd: krossgata

Rétt. Rýr frétt.  Ég las annars fyrst "þar sem nýja stúlkan á vellinum verður jafnframt formlega tekin í notkun" og rak í rogastans.

krossgata, 4.7.2007 kl. 17:44

4 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Hehe. Kannski þeir ætli að vera með svona cheerleader stelpu á Kópavogsvellinum.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 4.7.2007 kl. 17:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband