Búin með Potter

Ég las inn í nóttina og laust fyrir klukkan þrjú náði ég að klára sjöundu bókina í Harry Potter seríunni. Fjögur hundruð blaðsíður voru lagðar af velli í dag, sem var tvöfalt meira en ég las í gær. Það er langt síðan ég hef lesið eins margar blaðsíður á eins stuttum tíma.

Núna veit ég öll leyndarmálin! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Plís ekki taka þátt í þessari hallærislegu markaðsetningu!  Hver dó? Híhí

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.7.2007 kl. 10:13

2 identicon

Tökum ekki þátt í fárinu.

Dauðalistann, strax!? 

Már Högnason (IP-tala skráð) 23.7.2007 kl. 11:11

3 Smámynd: Gunnar Kr.

Hvað er svona hallærislegt við þessa markaðssetningu? (Ekki markaðsetningu). Hún er í einu orði sagt frábær! Það er langt síðan einhver hefur látið sér detta í hug svona stórkostlega heimsmarkaðssetningu, sem skilar rithöfundi milljónir á milljónir ofan. Hvað er hallærislegt við það? Eða er þetta öfund?

Það eina, virkilega hallærislega, eru þessar eilífu og asnalegu enskuslettur: Plís, æmsósjokkd, súmí, eintlæfbjútifúl...

Gunnar Kr., 23.7.2007 kl. 11:20

4 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Þess vegna skrifaðirðu ekkert í rúman sólarhring ...!

Berglind Steinsdóttir, 23.7.2007 kl. 11:35

5 identicon

Harry heitinn var Potter,
hann burt frá oss nú fer.
Harry var hreinn sveinn,
en hann dó þó ekki einn.

Rúsínan í pylsuendanum (IP-tala skráð) 23.7.2007 kl. 12:45

6 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Til hamingju með það, en kemur svo ekki mynd um endalok hans ?

Kveðja, KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 23.7.2007 kl. 15:30

7 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Frændi, ég held að Jenný hafi verið að grínast svo hún gæti dregið út úr mér sögulokin. Ég er viss um að við erum öll sammála um að markaðssetningin á bókum Rowling hefur verið betri en nokkur tímann hefur sést áður.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 23.7.2007 kl. 15:55

8 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Búin með 200 blaðsíður, þarf að skrifa eitt viðtal á eftir og ætla svo að henda mér í restina. Hef lesið Harry Potter frá upphafi og haft gaman af ÞRÁTT fyrir markaðssetninguna sem pirrar marga. Les líka reglulega Hringadróttinssögu, þríleikinn um Lýru (Gyllti áttavitinn, Lúmski hnífurinn og .... man ekki, eftir Philip Pullman, held ég). Er mjög hrifin af ævintýrabókum.

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 23.7.2007 kl. 17:03

9 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Ég sá einmitt nýlega að það er búið að gera  mynd um gyllta áttavitann sem ætti að koma út fyrir jólin. Hef aldrei lesið þá bók.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 23.7.2007 kl. 17:24

10 Smámynd: Björg K. Sigurðardóttir

Ef markaðsetningin á Harry Potter bókunum skilar sér í auknum bóklestri hjá börnum og unglingum þá held ég að það sé hið besta mál. En þetta er snilldarmarkaðssetning - það verður ekki annað sagt.

Björg K. Sigurðardóttir, 23.7.2007 kl. 22:14

11 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Illa farið með tímann! ég held nú ekki. Hef átt margar leiðinlegri helgar að undanförnu. Og svo er lestur náttúrulega alltaf að því góða. Varð algjörlega sjokkuð þó þegar ég komst að því að vinkona mín las bókina á sex klukkutímum. Verð þú að benda á að enska er hennar móðurmál!

Kristín M. Jóhannsdóttir, 23.7.2007 kl. 22:34

12 identicon

Sæl frænka!

Hver er þessi Potter sem allir eru að tala um og þú hefur lesið?

Kveðja

BH

bernharð haraldsson (IP-tala skráð) 24.7.2007 kl. 11:03

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það er slatti af viðkvæmu fólki sem skrifar í athugasemdakerfið þitt Stína mín.  Ég les þig alltaf, þú veist það, en ég held að ég láti vera að kvitta um sinn.

Smjúts,

Plís, æmsósjokkd, súmí, eintlæfbjútifúl

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.7.2007 kl. 00:18

14 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Hehe. Ekki hætta að skrifa Jenný. Sparkaðu bara á  móti. Gunnar getur alveg tekið því.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 25.7.2007 kl. 00:48

15 Smámynd: Gunnar Kr.

Jú, jú. Dæmigert svar þegar málefnaleg rök skortir.

Gunnar Kr., 25.7.2007 kl. 06:06

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú ert ekki í lagi Gunnar Kr.  málefnaleg rök fyrir að vera ósátt við að fólk sem ég þekki ekki neitt sé að skjóta á mig inni á annara manna bloggsíðum?  Ég held ekki.  Þetta er eins og að setjast niður í heimboði og móðga samgesti sína.

Ef þú átt eitthvað ótalað við mig, gerðu það heima hjá mér.

Auðvitað held ég áfram að "athugasemda" hjá þér Stína mín, þegar fýlan er úr mér (grín).

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.7.2007 kl. 19:52

17 Smámynd: Gunnar Kr.

Nú, viðkvæmnin er greinilega öll á einn veg. Ég held samt að það sé allt í fínu lagi hjá mér. En ég hélt að samferðafólkið hér væri ekki svona svakalega viðkvæmt og ómálefnalegt. Mer fannst bara undarlegt að kalla þessa snilldarmarkaðsetningu "hallærislega".

Gunnar Kr., 26.7.2007 kl. 07:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband