Í guðana bænum ekki lækka meira

Nú sem aldrei fyrr sit ég og bið um að krónan styrkist. Ég fæ nefnilega laun frá Íslandi en bý í Kanada og því þarf krónan að standa sterk gagnvart kanadíska dollarnum. Í dag stendur dollarinn í 59 krónum en var 57 fyrir nokkrum dögum. Þegar ég flutti til Kanada var dollarinn 50 krónur og nú býð ég eftir að svo verði aftur. Alla vega á meðan launin mín eru greidd í íslenskum krónum. 

Og ég sem vil helst aldrei hugsa um bankakerfið og peningamál því hausinn á mér skilur ekki tölur! 


mbl.is Krónan veiktist í lok dags
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Je minn góður. Mikið rosalega er leiðinlegt þegar hálfvitar koma og gera athugasemdir hjá manni. Ég er ekki sjálfselsk. Ég er að reyna að lifa af sem námsmaður á 80.000 krónum á mánuði þar sem leiga og reikningar eru um 70.000 krónur á mánuði. Það skilur ekki mikið eftir fyrir mat og skólabækur. Þeim mun minna virði sem krónan er þeim mun minna fæ ég að borða. Og hvernig er það sjálfselska að óska þess að krónan sé sterk? Já, það kemur mér vel en kemur það ekki mörgum öðrum vel líka? Ég er ekki að óska mér einhvers sem ég ein græði á. Reyndu að vera bara heima hjá þér með skítkast. Ég kæri mig ekkert um svona dónaskap frá ókunnugu fólki sem veit ekkert um mínar aðstæður.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 8.8.2007 kl. 01:04

2 Smámynd: Hagbarður

Ég held að það megi fullyrða að krónan er að komast eða er komin í lækkunarfasa. Erfiðleikar á fjármagnsmörkuðum erlendis eiga eftir að takmarka framboð á ódýru fjármagni sem að hluta hefur verið nýtt til að kaupa krónur (Jöklabréf eða skuldsett kaup á hlutafjármarkaði). Þegar fjármálastofnanir kippa að sér höndum leitar krónan úr þeim "speculatíva fasa" sem hún hefur verið í undanfarin misseri og atriði eins og heildareftirspurn og -framboð í hagkerfinu verða meira ráðandi um gengisskráninguna. Raungengið aðlagar sig og spurning hversu hratt það gerist.

Það kann að vera að þú sért að mörgu leyti heppin að vera stödd erlendis þó að launin þín séu í íslenskum krónum. Verðlag kann að taka miklum breytingum hér á skömmum tíma þannig að það er ekki svo víst að kjör þín skerðist í samanburði við fólk hér þó að krónan lækki. En óneitanlega ertu verra sett í samanburði við kollega þína erlendis.  

Hagbarður, 8.8.2007 kl. 01:20

3 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Takk fyrir upplýsingarnar Hagbarður. Það er gott að heyra frá fólki sem er málefnalegt og kurteist og ekki með skítkast. Ég vona að þú hafir vitlaust fyrir þér okkar allra vegna en mér sýnist þú vita um hvað þú ert að tala.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 8.8.2007 kl. 01:32

4 Smámynd: Púkinn

Púkinn hefur nú skrifað mikið um þetta mál og er á þeirri skoðun að lækkunin sé rétt af hefjast.  Ætli dollarinn verði ekki í um 70 kr að ári.

Það er einfaldlega engin innistæða fyrir þessari styrkingu krónunnar - þetta er bara tímabundin bóla vegna ofurvaxta Seðlabankans.  Ef vextirnir væru eðlilegir myndi krónan leyta jafnvægis í "eðlilegu" gengi.

Púkinn vonar það a.m.k. 

Púkinn, 8.8.2007 kl. 09:17

5 identicon

Vandi þinn er tvöfaldur Kristín. Kanadíski dollarinn er mjög sterkur gagnvart öðrum gjaldmiðlum, og verður væntanlega svo næstu misseri og ár. Svo ef þú getur fengið tekjur í CAD og krónan lækkar þá geturðu komið heim og spreðað sem aldrei fyrr.

"Every cloud ..... " osfrv.

kveðja

Bjarnig 

Bjarni (IP-tala skráð) 8.8.2007 kl. 12:40

6 Smámynd: Sigurjón

Á ekki að segja ,,í guðanna bænum"?  Alla vega er þetta alveg rétt hjá þér.  Ekki vil ég að krónan lækki mikið meira.  Þetta er orðið gott í bili.

Sigurjón, 12.8.2007 kl. 22:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband