Frúin taktlausa
28.8.2007 | 17:37
"Ert þú mamma hans Sams?" spurði mamma Chris og Tonyu feitlagna konu í partýinu hans Sams á laugardaginn. "Ha", sagði konuræfillinn og starði á þá sem spurði. "Mamma hans Sams?" Við Marion sem stóðum hjá roðnuðum báðar enda er Sam um fertugt og þessi kona gat varla verið eldri en 45 ára. "Já", sagði hin. "Einhver sagði mér að mamma hans Sams væri hérna og að hún hefði búið til þetta fína salat". Mamma Sams sem stóð á bakvið þá feitlögnu var gömul og gráhærð og öllu líklegri kandidat til þess að vera mamma Sams en sú sem spurð var. Ég sá hvað konunni leið illa - ábyggilega ekki oft sökuð um að eiga fertugan son - svo ég reyndi að bæta aðeins úr og sagði eitthvað á þá leið að hún hefði sem sagt orðið mamma á barnsaldri. "Ha" sagði konuræfillinn aftur. Svo ég spurði hversu mikið eldri en Sam hún væri og hún svaraði "Tveimur árum". Þetta var svolítið átakanlegt og ég fann til með henni. Mamma Chris og Tonyu virtist hins vegar ekkert taka eftir því hversu ónærgætin hún var. Pínulítið taktlaus sú.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.