Fyrsta Íslendingapartýið

Fyrsta óopinbera Íslendingapartý Vancouverborgar er planað á morgun. Reyndar með örstuttum fyrirvara þannig að það verður spurning hversu margir mæta. En af því við ætlum bara að skella okkur á bar þá skiptir ekki máli hversu margir koma í þetta tilraunaskipti. Við höfum rætt um að hittast kannski fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði. Þá getur fólk reglulega hitt aðra Íslendinga ef það vill, og sömuleiðis er auðvelt að forðast þá ef það vill ekki. Ef einhver Íslendingur í Vancouver sem ekki er á Facebook rekst á þetta blogg í kvöld eða morgun, læt ég það fylgja með hér að við ætlum að hittast klukkan átta á Bimini's í Kitsilano. Gaman gaman. Kannski hittir maður einhverja nýja.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband