"Hún er íslensk"

Mér fannst ég verða að setja þessa mynd inn á síðuna mína því mér finnst hún svo skemmtileg. Myndin er tekin fyrir einum þrem vikum þegar vinnuhópurinn minn fór á íþróttasafn Bresku Kólumbíu. Þetta var vinnufundur en um miðjan morgun fengum við tuttugu mínútna frí sem við notuðum til þess að kíkja á safnið og leika okkur í íþróttatækjunum sem þar voru. Þarna var meðal annars um 30 metra hlaupabraut og sérstakt tæki mældi hversu hratt maður hljóp. Á myndinni er Francois búinn að setja sig í stellingar, tilbúinn til þess að hlaupa. Ég horfi á. Francois setti myndina á Fésbókarsíðuna sína og skrifaði undir: Hún átti síðan eftir að hlaupa hraðar en ég en það er eðlilegt því hún er íslensk.

 


 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó Már Marinósson

og það fylgir ekki sögunni hversu hratt þú hljópst?   

Marinó Már Marinósson, 21.7.2008 kl. 10:06

2 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

ég bara hreinlega man það ekki.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 21.7.2008 kl. 13:16

3 identicon

je je hehe ;) ... en hey gaman að lesa að ísl konur "hafa það enn" ;)

Hrabba (IP-tala skráð) 23.7.2008 kl. 21:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband