Málfarslöggur

Hvernig stendur á því að enginn hefur gert sjónvarpsþætti um málfræðinga? Veit fólk ekki hversu spennandi líf prófarkalesara og málfarsráðunauta er? Við erum málsfarslöggurnar!

Mér finnst kominn tími til að bæta úr þessu og þess vegna skrifaði ég Dick Wolf hjá NBC og stakk upp á nýjum spinoff þætti út frá Law & Order. Þetta er þátturinn Law & Order: Language Police, eða Lög og regla: Málfarslöggur, upp á okkar ástkæra ylhýra. Þátturinn mun fjalla um prófarkalesara á stærstu fjölmiðlum New York borgar þar sem þeir takast á við fræga fréttamenn, stjórnmálamenn og annað frægt fólk. Efni hvers þáttar verður tekið úr daglegu lífi, eins og vant er með Law & Order þættina. Fyrsti þátturinn mun fjalla um málfarsbögur varaforseta Bandaríkjanna og fyrirmyndin er að sjálfsögðu Dan Quayle sem var varaforseti Bush eldri.

Hér að ofan má sjá merki þáttanna. Hver mun ekki vilja horfa á svona þætti?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Ásgeirsson

Ég vil fá hlutverk í þáttunum!

Gísli Ásgeirsson, 9.6.2007 kl. 06:39

2 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Kristín, þú ert með stórkostlega hugmynd. Íþróttafréttamenn myndu efalaust kalla hana frábæra ! Málfátæktin ríður víðar röftum en í Bandaríkjunum, þannig að mér finnst, að RUV og/eða Stöð tvö ættu kaupa hana strax af þér. Sá, sem hlýtur hnossið getur síðan selt afnot að hugmynd þinni og grætt, grætt og grætt í gríð og erg, vá,vá!!?!

Ég sé fyrir mér Jay Leno og íslandsvininn George W. Bush í slíkum þætti ! Ég veit ekki, hvort Dick Wolf þessi hafi vit á, hafi smekk fyrir eða fái leyfi til að kaupa þessa snjöllu hugmynd þína. Það er meiri von til að gáfaðasta þjóð heims, við, Íslendingar myndum kaupa hana og gera hana að markaðsvöru.

En allt um það við sjáum til. Gangi þér allt í haginn.

Með kveðju frá Siglufirði, KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 9.6.2007 kl. 07:06

3 identicon

Frábær hugmynd ... gæti ég ekki fengið gestahlutverk þar sem ég leik bófa sem talar hrikalega vitlaust??

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 9.6.2007 kl. 10:18

4 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Stína, ég vil ekki hlutverk, ég vil fá að glíma við þýðinguna! Það yrði glíma í lagi.

Berglind Steinsdóttir, 9.6.2007 kl. 11:20

5 Smámynd: Ólafur H Einarsson

Þetta er ,, alveg briljant hugmynd " svo vitnað sé í annan málfarssnilling.  Væri ekki betri hugmynd um þýskan málfræðing eða spænskan, það er svo yndislegt að læra þær spænsku.

REGLULEGAR SAGNIR

LOS VERBOS REGULARES 

-AR

HABL - AR = tala

habl O

habl AS

habl A

habl AMOS

habl ÁNIS

habl AN

Sérðu ekki fyrir þér handritið.

Ólafur H Einarsson, 9.6.2007 kl. 11:35

6 identicon

Skráðu mig upp (sign me up) í höfundateymið!

Friðþjófur Þorsteinsson (IP-tala skráð) 9.6.2007 kl. 15:08

7 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Þetta er snilldarhugmynd. Sé þetta fyrir mér gert á Íslandi ...

Hægt væri að hafa löggur sem t.d. sérhæfa sig í þágufallssýki, aðrar sem handtaka fólk fyrir að segja eitthvað á borð við: "Ég var ekki að geta þetta." (þú veist hvað það pirrar mig)

Sérdeild innan lögreglunnar gæti rannsakað beygingavillur og jafnvel Y-mistök. Svo yrði fólk dæmt til mislangrar vistar á íslenskunámskeiði.

Guðríður Haraldsdóttir, 9.6.2007 kl. 16:01

8 identicon

Hehe, hljómar mjög vel :) Ég veit thó ekki hversu spennt ég yrdi yfir slíkum thætti á engilsaxnesku, en kynni vel ad meta slíkt sjónvarpsefni á ástkæra, ylhyra :) Og veitir áreidanlega ekki af eftir ad vera búin ad búa í Noregi í hátt í áratug.. Karl Johan myndi áreidanlega elska thad, keypti handa honum norska "málfarslöggu"bók um daginn og hann sat yfir henni med blyantinn á lofti, hvert einasta kvöld í heila viku!

Helga Fanney (IP-tala skráð) 9.6.2007 kl. 16:43

9 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Frábærar hugmyndir allt saman. Er farin að vinna að þáttunum eins og sjá má á næsta bloggi hér á eftir.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 9.6.2007 kl. 17:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband