Stórkostlegasti söngvari okkar tíma

Pavarotti var án efa stórkostlegasti söngvari okkar tíma. Þegar ég frétti að hann ætlaði að halda tónleika hér í Vancouver síðastliðið sumar þá flýtti ég mér að kaupa miða. Tilhugsunin um að heyra hann syngja Nessun Dorma var fjárhagsáhyggjum yfirsterkari. En áður en að tónleikunum kom greindist hann með krabbamein og hann steig aldrei á svið aftur. Ég á ennþá ósnertan miðann. 

Fyrir mörgum árum gaf vinkona mín mér Pavarotti diskana tvo (Essential held ég að  þeir hafi kallast). Nessun Dorma var á þeim báðum en á öðrum þeirra í tónleikaútgáfu.Í hvert einasta skipti sem hann söng háu nóturnar þar fór ég að gráta og það jók á tilfinningasemina að heyra fólkið klappa því ég vissi að það var grátandi líka. Það hefur enginn svona rödd.


mbl.is Luciano Pavarotti látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Sammála..leitt að þú komst ekki til að sjá hann og heyra í eign persónu.  Það hefði ábyggilega verið magnificent!

Ég græt  oft yfir tónlist..sérstaklega söngvurum eins og Pavarotti.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 6.9.2007 kl. 18:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband