Frábær árangur það sem af er

Alveg er það ótrúlega skemmtilegt að sjá hversu vel Arsenal hefur staðið sig það sem af er þessu tímabili. Ég held að það hafi ekki margir búist við því enda liðið ungt og að sumu leyti óreynt. Ég vissi að þarna var gott efni en bjóst við að það myndi taka eitt til tvö ár í viðbót þar til blómin spryngju út. En það er greinilegt að liðið er ekki eins óreynt og maður hélt og þeir hafa sýnt sannkallaða meistaratakta það sem af er vetri. Ég vona að þeir haldi áfram á sömu braut og vona að þeir fái eina eða tvær dollur. Ég meina, hendinni yrði ekki slegið á móti fleirum, en það má ekki ætlast til of mikils enda hafa þeir gert betur en flestir bjuggu við.
mbl.is Arsenal skoraði 7 mörk gegn Slavia Prag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steinn Hafliðason

Vonandi þola útsprungnu blómin það þegar það kemur stormur og mótvindur eins og allir þurfa að þola til að ná alla leiðina í 1.sæti.

Áfram Arsenal

Steinn Hafliðason, 24.10.2007 kl. 21:47

2 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Já, við skulum vona það.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 24.10.2007 kl. 22:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband