Ekki alveg rétt

Það er ekki alveg nákvæmt að segja að vængirnir séu hvítir á þessum svönum. Það er miklu nær að segja að hvítar fjaðrir séu á vængjum en ef þið sjáið mynd af fuglunum þar sem þeir eru hvorki á flugi né að fínpússa sig þá eru þessar hvítu fjaðrir ekki sjáanlegar.

Ég hef nokkrum sinnum séð svarta svani (ekki í þó í sínu upphaflega umhverfi) og ég hef aldrei séð hvítu fjaðrirnar, enda hef ég aldrei séð þá á flugi. En þetta er sem sagt skýringin. Og á myndinni hér til hliðar má aðeins sjá glitta í hvítu fjaðrirnar.

Hægt er að lesa nánar um þessa fallegu fugla hér: http://en.wikipedia.org/wiki/Black_swan


mbl.is Svartir svanir á sveimi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ég gisti heima hjá belgískum dómara, sem átti svarta svani og var með heilan dýragarð í bakgarðinum hjá sér.

En dóttir hans var hvít.

Gleðilegt sumar, Stína mín!

Þorsteinn Briem, 24.4.2008 kl. 20:36

2 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Já, tékkaðirðu aðeins á dótturinni???

Kristín M. Jóhannsdóttir, 24.4.2008 kl. 23:16

3 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Svo er gaman að sjá hvíta svani fljúga í myrkri.   Tja.... eða voru þeir svartir?  Þeir voru alla veganna mjög dökkir.   

Hef bara einu sinni séð svartan svan en hann sat bara á vatninu og ég sá aldrei í neitt hvítt, augun voru meira segja rauð. 

Marinó Már Marinósson, 24.4.2008 kl. 23:58

4 identicon

hva bara verið að dissa moggann ... þennan eðal fréttamiðil

Hrabba (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 07:49

5 identicon

Þeir eru rosalega fallegir, hvernig sem þeir eru á litinn, takk fyrir að gerast bloggvinur, gaman að fylgjast með þér, þarna í þessu fallega landi.

alva (IP-tala skráð) 2.5.2008 kl. 11:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband