Vestur-Íslendingur leikur á Superbowl
3.2.2007 | 23:12
Ef einhverjir íþróttaáhugamenn á Íslandi ætla sér að horfa á Superbowl um helgina en vita ekki með hvaða liði þeir ættu að halda skal hér með bent á að í liði Indianapolis Colts leikur Vestur-Íslendingurinn Rob Morris (starting outside linebacker). Langalangafi hans og -amma, Eyjólfur Eiríksson og Jarþrúður Runólfsdóttir fluttu til Utah á árunum 1886 og 1887.
Sjálf efast ég nú um að ég nenni að horfa enda aldrei verið mikið gefin fyrir ameríska fótboltann. Hefðist helst viljað sjá auglýsingarnar sem sýndar eru í kringum leikinn enda mikið í þær lagt, en hér í Kanada fáum við ekki að sjá þær því þegar að auglýsingahléi kemur er klippt yfir á kanadískar auglýsingar sem eru bara þessar sömu gömlu.
Það væri annars athyglisvert að taka saman einhvers konar lista yfir vestur-íslenska afreksmenn því það er alveg óhætt að segja að þeir afkomendur forfeðra okkar sem fluttu vestur um haf um þarsíðustu aldamót hafa komið sér ákaflega vel fyrir í hinum nýja heimi og margir hverjir hafa komist til metorða á sviði stjórnmála, lista, fræða, íþrótta o.s.frv.
Íþróttir | Breytt 4.2.2007 kl. 00:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kveikjarinn leystur af
3.2.2007 | 07:05
Kveikjarinn sjálfur hefur misst vinnu sína við að skapa stemmningu á tónleikum. Áður fyrr var það regla að þegar kom að rólegu lagi á tónleikum kveikti fólk á kveikjurunum sínum og veifaði þeim í takt við lagið. Á Arrogant Worms tónleikunum varð ég vitni að því að í stað kveikjara veifaði fólk opnum farsímum. Samloku farsímarnir eru þannig gerðir að þegar þeir eru opnaðir kviknar ljós á skjánum og þetta var sem sagt notað til þess að skapa stemmningu. Ormunum fannst þetta ógurlega skemmtilegt og Trevor sagðist hafa aðeins séð einn kveikjara í öllu mannhafinu. Þá sagði Mike að það væri ekki rétt, þetta hafi ekki verið kveikjari heldur hafi verið kveikjari sem skjáhvílir á einum símanum. Ég gerði smá leit á vefnum þegar ég kom heim og komst að því að þetta er víst orðið algengt núna og er víst búið að vera það í rúmt ár eða lengur.
Sem sagt, tækning tekur alls staðar yfir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vinnur rjúpan bjórinn?
3.2.2007 | 02:45
Ísland-Kanada í knattspyrnu. Það er eins gott að okkar menn vinni. Er ekki viss um að ég gæti horft framan í vini mína hér ytra ef við töpuðum fyrir þeim. Knattspyrna er reyndar geysivinsæl hér sem þátttökusport en fjöldi þeirra sem horfir á knattspyrnuleik er aðeins brot af þeim fjölda sem horfir á hokkí eða kanadíska fótboltann. Eins og sunnan landamæranna er verið að reyna að rífa upp boltann en hingað til hefur það lítið gengið.
P.S. og fyrir þá sem halda að fyrisögnin hafi eitthvað með öl að gera skal bent á að þjóðardýr Kanadamann er bjór sem á ensku kallast beaver.
![]() |
Ísland mætir Kanada á Laugardalsvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vel valið
3.2.2007 | 02:03
Frábært. Ég er einmitt að lesa síðustu kaflana í Draumalandinu og finnst það alveg mögnuð bók. Fyrstu kaflarnir eru fyrst og fremst skemmtilegir en þeim mun aftar sem dregur tekur meiri og meiri alvara við og ég átti ekki orð yfir sumu því sem þar stendur. Þessa bók eiga eiginlega allir að lesa og hún er þannig skrifuð að það ætti enginn að eiga í vandræðum með það. Hversu oft grípur mann svona fræðibók um umhverfismál. Ég vona samt að Andri og Ómar fari ekki að bjóða fram sér flokk. Það er ekki gott ef grænu atkvæðin fara að dreifast um of.
Vinur minn mælir annars með bókin Collapsed eftir Gerard Diamond. Stór og mikil bók um umhverfismál og þar eru meðal annars kaflar um Ísland og Grænland.
Til hamingju Andri Snær.
P.S. Til hamingju líka Ólafur. Hef hins vegar ekki lesið þá bók né neina hinna sem tilnefndar eru þannig að ég get lítið sagt um það val.
![]() |
Andri Snær og Ólafur Jóhann hlutu Íslensku bókmenntaverðlaunin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinir hrokafullu ormar
2.2.2007 | 21:39

Í gær fór ég á alveg frábæra tónleika. Það voru hinir hrokafullu ormar sem léku (Arrogant Worms) en þeir eru kanadísk gríngrúbba sem ég er ákaflega hrifin af. Ég hafði séð þá tvisvar sinnum áður á sviði og í bæði skiptin skemmti ég mér konunglega. Lögin þeirra eru skemmtileg og grípandi og textarnir alveg magnaðir, þótt einn og einn sé fyrir neðan beltisstað. Uppáhaldslagið mitt er alltaf áróðurinn gegn grænmetisáti , Carrot Juice Is Murder sem hér má sjá og heyra að neðan.
Listen up brothers and sisters. Come hear my desperate tale.
I speak of our friends of nature trapped in the dirt like a jail.
Vegetables live in oppression served on our tables each night.
This killing of veggies is madness. I say we take up the fight.
Salads are only for murderers. Coleslaw's a fascist regime.
Don't think that they don't have feelings just cuz a radish can't scream.
Chorus:
I've heard the screams of the vegetables, (Scream, scream, scream.)
Watching their skins being peeled. (Having their insides revealed.)
Grated and steamed with no mercy. (Burning off calories.)
How do you think that feels? (Bet it hurts really bad.)
Carrot juice constitutes murder. (And that's a real crime.)
Greenhouses prisons for slaves. (Let my vegetables grow.)
It's time to stop all this gardening. (It's dirty as hell.)
Let's call a spade a spade. (Is a spade, is a spade, is a spade.)
I saw a man eating celery so I beat him black and blue.
If he ever touches a sprout again, I'll bite him clean in two.
I'm political prisoner trapped in a windowless cage,
Cause I stopped the slaughter of turnips by killing five men in a rage.
I told the judge when he sentenced me, "This is my finest hour
I'd kill those farmers again just to save one more cauliflower."
Chorus:
I've heard the screams of the vegetables, (Scream, scream, scream.)
Watching their skins being peeled. (Having their insides revealed.)
Grated and steamed with no mercy. (Burning off calories)
How do you think that feels? (Bet it hurts really bad.)
Carrot juice constitutes murder. (And that's a real crime.)
Greenhouses prisons for slaves. (Let my vegetables grow.)
It's time to stop all this gardening. (It's dirty as hell.)
Let's call a spade a spade. (Is a spade, is a spade, is a spade.)
How low as people do we dare to stoop
Making young broccolis bleed in the soup.
Untie your beans, uncage your tomatoes, Let potted plants free.
Don't mash that potato,
Oh, spare the spider, Eat up calories, Oh!
Chorus:
I've heard the screams of the vegetables, (Scream, scream, scream)
Watching their skins being peeled. (Fates in the stir fry are sealed.)
Grated and steamed with no mercy. (You fat gourmet scum.)
How do you think that feels? (Leave them out in the fields.)
Carrot juice constitutes murder. (V8's genocide.)
Greenhouses prisons for slaves. (Yes your compost's a grave.)
It's time to stop all this gardening. (Take up macramé.)
Let's call a spade a spade. (Is a spade, is a spade, is a spade.)
Tónlist | Breytt 3.2.2007 kl. 00:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú skal hlaupið
31.1.2007 | 20:58
Í dag skráði ég mig í 10 kílómetra hlaup í Vancouver Sun keppninni. Ég hef ekki hlaupið í marga mánuði vegna þess að ég er búin að vera að berjast við meiðsli og síðan veikindi, en ég hef þrjá mánuði til að komast í form. Ætti að geta það. Í versta falli hleyp ég tíu kílómetrana á lengri tíma en ég áætlaði við skráningu.
Og nú verð ég að hætta að blogga. Ég geri allt til þess að þurfa ekki að lesa skólabækurnar en minna má nú vera. Í stað ætla ég að koma mér upp í skóla enda á ég að hitta Gunnar klukkan þrjú. Ef ég er snemma á ferð næ ég kannski að pína mig til að setjast niður með kaffibolla og lesa grein eftir Jean-Marc Gachelin um framvinduhorf og vanahorf í ensku. Og það er líka best að ég muni eftir að koma við á Ticketmaster og sækja miðann minn á Arrogant Worms tónleikana á morgun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Skemmtilegir...
31.1.2007 | 20:11
![]() |
Berlusconi biður konu sína auðmjúklega fyrirgefningar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hugleiðingar um endurvinnslu
31.1.2007 | 17:44
Ef Íslendingum er alvara með að koma sér upp alvöru endurvinnsluprógrammi held ég að það sé nauðsynlegt að breyta kerfinu. Ég hef alltaf verið að kynnast betra og betra kerfi og þeim mun betra sem kerfið er, þeim mun meira endurvinn ég.
Víðast hvar í Kanada er öllum heimilum úthlutaður blár kassi (ég held rauður í Quebec) og tveir plastpokar. Í kassann setur maður gler, ál og plast en í pokana pappír. Dagblöð í annan en annars konar pappír í hinn. Í hverri viku, á fyrirfram ákveðnum degi, kemur bíll og sækir þetta. Þetta gerir það að verkum að ég endurvinn allt. ALLT. Ég safna dagblöðunum saman, öðrum blöðum, dósum af öllu tagi, flöskum af öllu tagi, alls kyns plasti (svo framarlega sem það er endurvinnanlegt). Ef við værum með compost í garðinum myndi ég setja þangað matarleifar.
Þegar ég var heima á Akureyri um jólin var eitthvað minnst á endurvinnslu og þar sögðu ýmsir að þeir nenntu varla að standa í þessu því það þyrfti alltaf að raða draslinu inn í bíl og keyra með það á einhvern endurvinnslustað. Og annað hvort þarf maður að gera þetta mjög reglulega eða þá alls kyns drasl safnast saman hjá manni. Og ég skil það vel, ég var fremur löt við endurvinnsluna heima. Og þó það sé auðvelt að skamma fólk og segja því að hugsa um náttúruna en ekki eigin leti, þá held ég að það væri einfaldlega miklu betra að sækja endurvinnsluna heim, rétt eins og ruslið. Jú, það myndi kosta peninga en það myndi líka skapa atvinnu og við legðum meira til þess að vernda landið okkar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kaffiraunir
31.1.2007 | 17:32
Ég var töluvert utanvið mig í gærmorgun. Ég var rétt byrjuð á því að taka til morgunmat þegar ég mundi að það var rusla- og endurvinnsludagur. Vanalega koma bílarnir snemma á morgnana svo ég skellti kaffikönnunni í samband, setti hálfa beyglu í brauðristina, henti mér í föt og hljóp út með vikubirgðir af rusli og endurvinnslu (hér þorir maður ekki að setja ruslið út fyrr en rétt fyrir rusladag því annars koma þvottabirnir í ruslatunnurnar og dreifa ruslinu út um allt). þegar ég kom til baka var kaffið til, beyglan ristuð og ég þurfti bara að skella ávaxtasalatinu í skál svo ég gæti borðað góðan morgunverð. Nema hvað...kaffið var andskoti þunnt. Jafnvel verra en þegar mamma hellir upp á sitt uppáhaldskaffi. Afi kallaði kaffið hennar mömmu ærmigu í sólskini, hvað skyldi þá þetta kaffi vera? Ég reyndi að slafra þessu í mig (enda alþekkt boðorð á mínu heimili: "Slafraðu þessu í þig og pillaðu þig svo frá borðinu!") en það var fremur erfitt. Svo að lokum gafst ég upp og ákvað að hellta upp á nýtt kaffi. Svo ég fór og hellti þessu sulli niður. Skildi ekki ennþá hvernig ég gat lagað svona þunnt kaffi þar sem ég set vanalega tvær skeiðar á einn bolla. En hvað, þegar ég helli kaffinu virðist það ljósara en mig grunaði. Eiginlega alveg glært. Þetta hafði ég ekki séð áður því bollinn er svartur að innan. Jæja, hvað um það, ég fer að kaffikönnunni (lítil einbolla vél) og geri mig tilbúna til að henda korginum svo ég geti fyllt á aftur...og þá skil ég hvernig í öllu liggur. Það er enginn korgur. Ég hafði ekki verið búin að setja kaffið í þegar ég hljóp út með ruslið. Eina kaffibragðið af kaffinu kom því af því að fara í gegnum margnota filterinn.
Ég hló að sjálfri mér, setti nóg af kaffi í filterinn og kveikti svo á könnunni - án þess að hafa hellt vatninu í. En nú sá ég villu mína í tíma, lagaði mistökin og uppskar rjúkandi heitt og gott kaffi.
Og seinna um daginn lærði ég upp á eigin spýtur hvernig ég ætti að hekla í húfukanta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
...og þannig fór sem fór
30.1.2007 | 21:17
Æ æ æ æ æ. Alltaf sorglegt að tapa fyrir Dönum. Sérstaklega þegar þeir eru svona kotrosknir fyrir leik eins og núna.
Hey, er þá ekki stefnan bara á fimmta sætið? Eða er kannski ekki leikið um það?
![]() |
Draumurinn úti í Hamborg - Danir sigruðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)