Færsluflokkur: Bloggar

Hver dettur út í ædolinu?

Ég var að horfa á American Idol nú  þegar aðeins sex keppendur eru eftir. Þeir eru allir fantagóðir og sennilega hefur tekist rétt að velja topp sex hópinn. Alla vega held ég að enginn sem datt út hafi verið betri. Málið er hins vegar að keppnin er orðin algjörlega opin og ég held að úrslitin geti orðið hver sem er. Ég held ennþá að Melinda sé besti söngvarinn af þeim öllum en hún fær orðið harða keppni frá hinum sem verða betri og betri með hverri vikunni. Það er helst að LaKisha hafi látið nokkuð undan síga. Hún var frábær mjög snemma í þættinum en stendur núna nokkuð jafnfætis hinum fimm. Hún gæti fallið út á morgun.

Stjarna kvöldsins var án efa hin unga Jordin Sparks sem var alveg ótrúleg. Hún gæti farið alla leið. Hún hefur hæfileikana, útlitið og þar að auki er hún aðeins 17 ára þannig að hún fær ábyggilega einhver atkvæði út á það. Ég held hún muni veita Melindu harða keppni.

Strákarnir voru allir mjög góðir í  kvöld og eru orðnir mun betri en ég átti von á. Ég hélt að stelpurnar myndu stinga þá af snemma í keppninni en þessir þrír, Chris, Blake og Phil hafa unnið vel og uppskorið samkvæmt því. Þetta á eftir að verða mjög spennandi.

Verst er þó að  mér er eiginlega sama hver vinnur. Og það er alls ekkert skemmtilegt. Þetta var miklu meira spennandi í fyrra þegar ég átti mér uppáhald og fékk þar af leiðandi hnút í  magann í hverjum úrslitaþætti. Ég verð bara að spila gamla þætti með Taylor. 


Yeeeeeeeesssssssssss!!!!!!!!

Við unnum, við unnum!!! Lokastaðan varð 4-1 þar sem pökkurinn fór tvisvar sinnum í Stjörnunetið á síðustu tveimur  mínútunum. Stjörnurnar höfðu tekið markmanninn sinn út í von um að jafna leikinn en það gekk ekki eftir, Vancouver náði pökknum í tvígang og skoraði í tómt netið. Lokastaða í seríunni er því 4-3 fyrir Vancouver sem á miðvikudaginn mun spila gegn Anaheim Might Ducks. 

Ég hef tvær ástæður fyrir því að vilja sigur í þeirri seríu. Annars vegar vegna þess að ég vil auðvitað að mitt lið vinni. Hin ástæða þess er sú að Íslendingar eiga harma að hafna gegn öndunum. Munið þið ekki eftir barnamyndininn Might Ducks sem sýnd var einhvern tímann í upphafi tíunda áratugarins. Þetta var krakka lið sem byrjaði með eintóma aumingja sem síðar urðu besta barnalið í heimi og unnu þar í lokakeppninni enga aðra en Íslendinga sem áður höfðu verið taldir bestir í heimi. Ég held að María Ellingsen hafi leikið íslenska konu í myndinni—og hét nafni sem alls ekki var Íslenskt. Sem sagt, eftir viinsældir þeirra mynda var liðið Anaheim Mighty Ducks stofnað og hefur nú orðið eitt besta liðið í NHL deildinni. Það verður því erfitt að vinna þá, sérstaklega vegna þess að kanúkarnir fá aðeins eins dags hvíld (sem þeir þurfa að nota til þess að fljúga niður til Anaheim) en Anaheim fékk fimm daga hvíld þar sem þeir slógu Minnesota Wilds út í fimm leikjum. En hver veit, með Luongo í marki getur allt gerst.

Það athyglisverðasta er að eftir síðasta leik var Alain Vigneault eins reiður og nokkur hefur séð hann og skammaðist hann fyrst og fremst yfir því að bestu leikmennirnir sínir virtust ekkert leggja sig fram. Þar átti hann við Linden, Naslund og Sedin bræðurnar.Vigneault Mörgum fannst han full harður við þá en taktíkin virðist hafa dugað. Í síðustu leikjum fengju þessir fjórir aðeins eitt stig sameiginlega en í þessum leik skoraði Henrik eftir sendingu frá bróður sínum og Linden skoraði svo hið eiginlega sigurmark. Sem sagt, þrjú stig þar. Ég hef fulla trú á því að Vigneault viti hvað hann er að gera. Hann er harður þjálfari sem lætur engan komast upp með neitt. Hann er ekkert hræddur við að taka bestu leikmennina sína út af ef þeir standa sig ekki, ólíkt fyrirrennara hans sem notaði alltaf sömu leikmennina, hvernig sem þeir léku. Vigneault lætur þá ekki komast upp með leti eða múður og ræðan gegn fjórmenningunum var greinilega hluti af áætlun hans. Það dugði og ekki aðeins þessir fjórir spiluðu betur en þeir hafa gert alla vikuna, heldur á það við um alla leikmennina. Sigur uppskorinn og þegar Vigneault leit til himna eftir sigurmarkið var hann ábyggilega að þakka guði aðstoðina. 


Skjótt skipast veður í lofti

Útlitið er heldur betra nú en síðast þegar ég skrifaði. í frábærum öðrum leikhluta jöfnuðu Canucks, með marki frá Henrik Sedin, og eftir átta mínútur af þriðja leikhluta skoraði Trevor Linden, svo staðan er 2-1 eins og er. Það eru hins vegar enn tíu mínútur eftir og margt getur gerst á þeim tíma.

Vonandi verður næsta bloggfærsla mín tilkynning um unnin leik. 


Ómetanlegt tjón ef af verður

Þetta eru hræðilegar fréttir. Bryggjuhverfið í Bergen er alveg ótrúlega fallegt og sjarmerandi svo ekki sé talað um sögulegt. Það væri ómetanlegt tjón ef þessi hús skemmdust. Ég vona að hægt sé að finna leiðir til að bjarga þeim því ekki treysti ég mannskepnunni til þess að snúa þróuninni við.
mbl.is Hækkandi sjávarborð ógnar sögufrægum byggingum í Bergen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hreiður

Ég held að glóbrystingur sé búinn að búa sér til hreiður ofan á strompnum í húsinu við hliðina á mér. Alla vega tók ég eftir því í fyrsta sinn að það er hrúga af stráum ofan á strompnum. Ég get ekki séð þetta vel því strompurinn er hærri en glugginn minn. Greyið glóbrystingurinn ef þetta er rétt því ég held að það eigi að rífa þetta hús. Það er alla vega búið að tæma það og girða tréin fyrir framan, sem vanalega er aðeins gert þegar á að rífa eða gera heilmiklar endurbætur. Ég vona að það gerist ekki og að ég fái að fylgjast með litlum goggum heimta mat fyrir framan gluggann minn.

Svolítið um verkefnið mitt

Þetta er einn af þessum rólegu dögum þar sem allt gerist nokkurn veginn á sama hátt. Vakna klukkan átta. Borða morgunverð (kaffi, beyglu, eina skál af niðurskornum ávöxtum) og lesa blaðið. Þetta tekur ýmist hálftíma eða klukkutíma. Í morgun var það klukkutími. Vinna í einhvern tíma á meðan ég læt renna í bað (elska bað - miklu betra en sturta). Fara í bað. Halda áfram að vinna fram að hádegi. 

Á föstudaginn fundaði ég með umsjónakennara mínum um það sem ég hafði verið að skrifa í ritgerðinni. Hann var mjög ánægður með það, sem er gott því honum hefur fundist ég ekki nógu fókuseruð upp á síkastið. Það hefur ekki vantað að ég skrifaði, en honum fannst ég eyða of miklum tíma í að velta mér upp úr smámerkingarmun á milli setninga. Mér finnst hins vegar þessi fíni merkingarmunur mjög mikilvægur. Hvers vegna er það til dæmis að þegar maður segir, Jón er alltaf lærandi, þá er ákveðin neikvæðni þrungin í setningunni? Neikvæðara en ef maður segir Jón er alltaf að læra. Málið er hins vegar að ef ég ætla að útskýra öll smáatriði þá verður þessi ritgerð mörg hundruð síður og tekur þá væntanlega mörg ár að skrifa. Þannig að ég reyni að einbeita mér að því sem ég á að vera að gera; útskýra framvinduhorf. 

Fyrir þá sem ekki vita, en eru enn að lesa þetta, þá er framvinduhorf það þegar ákveðinn atburður er í gangi, svona eins og þegar við segjum Jón var að borða epli þegar ég sá hann. Hér sjáum við tvo tíma. Tímann þegar ég sá Jón, sem er kallað 'reference time', hugsanlega 'tilvísunartími' á íslensku. Svo er það tíminn þegar Jón er að borða, 'atburðartíminn'. í framvinduhorfi er tilvísunartíminn innan atburðartímans, þ.e. Þegar ég sá Jón var hann þegar byrjaður að borða epli og að öllum líkindum hélt hann áfram að borða epli eftir að ég sá hann. Er þetta flókið? Kannski ekki skrítið, merkingarfræði er aldrei auðveld. 

En ef ykkur finnst þetta flókið þá get ég sagt ykkur að það versnar þegar maður fer svo að nota formlega rökfræði til þess að lýsa setningum. Hér fyrir neðan getið þið séð hluta af afrekstri morgunsins. Þetta er setningin John is kissing Mary (Jón er að kyssa Maríu):

 


 

Formlega rökfræðin er enn minn veikasti punktur í merkingarfræði. Sem er ástæða þess að ég ætla að taka sumarnámskeið í rökfræði hjá heimspekideildinni. Gallinn er að ég óttast að ég græði ekkert á því vegna þess að þeir kenna aðallega það sem kallast propositional logic og predicate logic og síðan fara þeir út í sannanir á þeim formúlum. Það sem mig vantar fyrst og fremst, hins vegar, er rökfræðin sem kemur þar á eftir. En það sakar ekki að sitja kúrsinn og sjá hvort ég læri eitthvað.

Ég hef sem sagt setið í morgun og skrifað upp formúlur eins og þessar. Það sem ég þarf að útskýra núna er hvers vegna a) ástandssagnir eru vanalega ekki í framvinduhorfi, og b) hvers vegna það er að aukast (Ég er að elska þetta lag). Það eru ýmsar skýringar til á fyrri spurningunni en enginn hefur getað svarað báðum spurningunum almennilega með einni kenningu. Allar kenningar sem geta svarað a lenda í vandræðum með b. Ég hef ákveðna hugmynd og nú verð ég að skella mér í að sjá hvort hún gengur upp.

Eftir hádegið mun ég sem sagt gera það sama og ég geri alltaf eftir hádegi ef ég fer ekki að klifra, þ.e. skrifa skrifa skrifa, og taka svo pásur inn á milli og kannski fara út að labba. Veðrið er alveg yndislegt núna og sumarið í nánd. Það væri því ekki amalegt að sleikja upp svolítið af D vítamíni.

 
 
 

 


Skattatími

Ég er á síðasta snúningi með skattskýrsluna mína eins og oft áður. Málið er að íslenskar skattskýrslur eru eins og reikningsbók þriðja bekkjar miðað við skýrslurnar sem við þurfum að fylla út í Kanada. Ekki er það aðeins að við þurfum að reikna út bæði landsskatt og fylkisskatt, heldur þurfum við í orðsins fyllstu að reikna þetta allt út sjálf (margalda með mismunandi prósentum, draga frá tölur sem maður veit ekki einu sinni hvað tákna o.s.frv.). Þannig eru línurnar sem þarf að fylla mörg hundruð, formin fjölda mörg (ég þarf að fylla út 5—10 blaðsíður—og mín skýrlsla er líklega eins einföld og hægt er) og allt er þetta hvert öðru flóknara. Þetta er sennilega sjöunda árið sem ég þarf að fylla út skattskýrslu hér og ég held ég hafi aldrei gert það rétt. Vanalega reiknast mér svo að ég skuldi skattinum svo ég skrifa tékka og sendi með en fæ hann næstum alltaf til baka því ég gerði eitthvað vitlaust og í raun skuldar skatturinn mér. Sem er auðvitað mjög gott. Að þessu sinni reiknast mér svo að skatturinn skuldi mér en ég er næstum sannfærð um að það sé rangt því hluti af peningum mínum á síðasta ári var námsstyrkur og þar er skatturinn ekki sjálfkrafa dreginn af manni. Þannig að ég hlýt að skulda. Nema ég hafi loksins talið frádráttarliði rétt fram. 

Annars var erfitt að komast af stað með skýrsluna. Fyrst vegna þess að þetta er ömurlegt verk og tekur langan tíma svo ég tímdi ekki tímanum sem færi í það. En svo þegar loksins ég ákvað að taka tíma í þetta þá fann ég ekki skýrsluna mína, né miðann frá skólanum um hvað ég hefði fengið í laun. Ég leitaði um allt. Fór í gegnum alla pappírsbunka sem ég fann en...ekkert. Ég varð loks að fara upp í skóla og fá útprent frá þeim, og síðan niður á pósthús og ná í aðra skýrslu. Það góða sem þetta hafði í för með sér var að ég lagaði til hjá mér og henti fullt af pappír sem ég þarf ekki á að halda. Það var auðveldara en að reyna að finna skýrsluna með því að færa til bunka. Á hinn bóginn dugði þetta ekki því ég hef aldrei fundið þessa skattpappíra. Ég setti þá greinilega á einhvern mjög góðan stað.

Nú á meðan ég skrifa þetta er ég að reyna að ljósrita skýrsluna til að eiga eintak en það gengur ekki mjög vel. Bölv. HP prentarinn minn er ömurlegur og er alltaf að flækja pappírinn. Ég veit ekki hversu oft ég hef látið falla ill orð um þennan prentara. Ég ætti í raun að kaupa nýjan en það er þægilegt að hafa skanna og ljósritara í sama pakkanum og þeir sem eru þannig og eru ódýrir virðast jafnmikið drasl.

 


Morðkanínan

Ég fann þessa mynd á netinu og finnst hún alveg frábær. Vildi deila henni með ykkur.
 
Killer Rabbit

Skunkafjandi

Einhvern tímann síðastliðna nótt dreymdi mig að hræðileg fýla fyllti loftið og ég reyndi að komast burt án árangurs.

skunkar
Ég vaknaði loks og uppgötvaði þá að lyktin kom inn í drauma mína vegna þess að ég fann hana í alvörunni. Þetta var lykt af skunki. Ég veit ekki hvort hann var eitthvað að hanga fyrir utan svefnherbergisgluggann minn eða hvort hann spreyjaði eitthvað fyrir utan en mikið var lyktin hræðileg. Ég stakk höfðinu undir sængina og reyndi að sofna aftur enda klukkan ekki orðin sex, en það dugði ekki til. Mundi loks að ég átti Vicks krem...svona sem maður ber á brjóstkassann þegar maður hefur kvef. Ég bar þetta á andlitið á mér, fyrir neðan nasaholurnar og eftir það fann ég enga aðra lykt. Ég náði sem sagt að snúa á skunkinn og sofna.

Mikið eru þetta annars leiðinlegar skepnur. Ég held ég hafi sagt það áður.


Áframhaldandi hokkíhugleiðingar

í gær sleppti ég píanótónleikum Víkings vegna þess að þeir voru á sama tíma og fimmti leikurinn í Canucks-Stars einvíginu. Ef Canucks hefðu unnið þá hefðu þeir unnið seríuna. En leikurinn fór 1-0 fyrir Stjörnunum í framlengingu og serían heldur því áfram. Staðan í heildina er nú 3-2 fyrir Vancouver og þeir hafa því annað tækifæri á morgun til þess að vinna. Ég, Marion og Ryan höfum talað um að fara niður í bæ á einhvern bar og horfa þar á leikinn með öðru fólki. Það gæti verið skemmtilegt. Ég hef komist að því að ég á engan uppáhalds leikmann. Sem Skandinavi er ég auðvitað stolt af Svíunum, Markus Naslund, Henrik Sedin og Daniel Sedin, en það eru margir góðir leikmenn í liðinu. Í staðinn held ég upp á þjálfarann, Alain Vigneault. Kannski er það vegna þess að hann er frá Gatineau, þar sem Martin býr og þar sem ég eyddi megninu af sumrinu í fyrra...kannski er það vegna þess að hann er svoítið bangsalegur (grennri útgáfa af Erni Árnasyni)...eða bara vegna þess að hann er besti þjálfari sem Vancouver hefur átt! Set hér inn myndband með honum, svona rétt til að sjá hvort mér tekst það.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband