Færsluflokkur: Bloggar
Stafavíxl
1.3.2007 | 01:39
Munið þið eftir því þegar um netið gekk ljósum logum texti sem hélt því fram að það væri allt í lagi að rugla stöfunum í löngu orðunum, svo framarlega sem fyrsti og síðasti stafurinn væri á réttum stað. Ég fékk þennan texta sendan enn einu sinni í dag og ákvað þá að sýna svar sem einn kennarinn minn hér í UBC skrifaði við þessum texta.
Hér kemur fyrst upphaflegi textinn:
Aoccdrnig to a rsereach at an Elingsh uinervtisy, it deosn't mttaer in waht oredr the ltteers in a wrod are,the olny iprmoatnt tihng is taht frist and lsat ltteer is at the rghit pclae. The rset can be a toatl mses and you can sitll raed it wouthit porbelm. Tihs is bcuseae we do not raed ervey lteter by it slef but the wrod as a wlohe.
það er rétt, það er nokkuð auðvelt að skilja þennan text. En lítið nú á svar Bryans (sem mér skilst að gangi nú um vefinn líka sem "famous quote"):
Anidroccg to crad cniyrrag lcitsiugnis planoissefors at an uemannd utisreviny in Bsitirh Cibmuloa, and crartnoy to the duoibus cmials of the ueticnd rcraeseh, a slpmie, macinahcel ioisrevnn of ianretnl cretcarahs araepps sneiciffut to csufnoe the eadyrevy oekoolnr.
Ekki svo gott að skilja. Ég endaði á því að nota 'unscramble' heimasíðu (hér: http://www.unscramble.net/index.php) til þess að skilja allt. Sem sagt, það lítur ekki út fyrir að fyrsta staðhæfingin haldist.
Hér kemur afskrömbluð útgáfa af texta Bryans svo þið þurfið ekki að nota heimasíðuna:
According to card carrying linguistics professionals at an unnamed university in British Columbia and contrary to the dubious claims of the uncited research, a simple mechanical inversion of internal characters appears sufficient to confuse the everyday onlooker.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 04:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Rjómaís og ólétta
28.2.2007 | 17:44
Jæja dömur mínar. Nýjustu rannsóknir segja að ef þið viljið verða ófrískar, þá er um að gera að borða rjómaís.
Heilsugæsludeild Harvard skóla, sem fylgdi 18.555 heilbrigðum, giftum konum, komst að þeirri niðurstöðu að konur sem borðuðu fitusnauðar (eða fitulitlar) mjólkurafurðir, sérstaklega jógurt, sherbert og frosna jógúrt, voru 85 prósentum líklegri til þess að eiga í vandræðum með egglos en konur sem borðuðu fituríkar mjólkurafurðir.
Þannig að, ef þið eruð að hugsa um að eignast börn þá er um að gera að borða ís og drekka nýmjólk. Ég mæli endregið með Ben and Jerry's Chuncky monkey. Ef Ísland er enn of vitlaust til að selja Ben and Jerry's þá mæli ég með Haegendaz Dolce de leche....mmm good.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hvað voru þeir að hugsa?
28.2.2007 | 02:25
![]() |
Arsenal og Chelsea ákærð og Eboue í slæmum málum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bara áttatíu dagar....
27.2.2007 | 19:29
...þangað til nýja Shrek myndin verður tekin til sýninga. Þangað til, kíkið hingað: http://www.shrek.com/main.html
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Kirkjublogg
27.2.2007 | 17:42
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ertu klárari en fimmtubekkingur?
27.2.2007 | 17:17
Í kvöld er að hefjast nýr spurningarþáttur vestra þar sem fullorðnir keppa hvor við annan, en allar spurningarnar eru úr skólabókum fimmta bekks. Ef þeir geta ekki svarað geta þeir leitað til hóps af fimmtubekkingum um hjálp. Ætlunin er vísast að sýna fólki hversu miklu maður er búinn að gleyma frá því maður var í barnaskóla. Vancouver Sun ræður fólk frá því að horfa á þennan þátt með börnunum sínum ef það vill ekki þurfa að skammast sín.
Spurningarnar eru í þessum dúr:
1. Hvert er stærsta landið í Suður Ameríku?
2. Rétt eða rangt: strúturinn er hraðastur allra fugla á fæti.
Reyndar er eitt mjög athyglisvert þegar ég les yfir spurningarnar. Það er hversu mikið erfiðara enskumælandi börn eiga að mörgu leyti en t.d. íslensk, vegna þess að málið þeirra eru ekki eins gagnsætt. sjáið t.d. muninn á eftirfarandi spurningum:
A heptagon has how many sides?
Hversu margar hliðar hefur sjöhyrningur?
íslenska spurningin inniheldur svarið en til að vita svarið við ensku spurningunni þarf að þekkja rótin a hepta sem er alls ekki það sama og seven.
Annað dæmi:
If you have a gross of pencils, how many pencils do you have?
Ef þú hefur tólf tylftir af blýöntum, hversu marga blýanta hefurðu?
Aftur , mun gagnsærra á íslensku.
Enn eitt dæmi:
Ture or false: A turtle is an amphibian.
Rétt eða rangt: skjaldbaka er froskdýr?
Dah. Stundum finnst okkur málið okkar flækja allt vegna beyginga, undalegrar stafsetningu, o.sfrv. en á móti má benda á að íslenskan er alveg ótrúlega auðskilið mál að mörgu leyti. Miklu miklu gagnsærri en enskan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Grjótglíma
27.2.2007 | 07:18
Ég fór og klifraði í dag. Geri það reyndar alltaf á mánudögum. Ég stóð mig bara ágætlega, náði að klára leiðir sem ég hafði ekki klárað áður og komst býsna langt með eina leið sem er að stigi V3. Það er auðvitað lélegt þegar tekið er tillit til þess að þeir bestu klifra V12 en það er auðvitað fólk sem er búið að æfa íþróttina lengi og byrjaði yfirleitt mjög ungt. Ég byrjaði náttúrulega á gamals aldri og á eftir að byggja upp vöðva á stöðum þar sem ég vissi ekki einu sinni að væru vöðvar. Það sem hamlar mér helst núna er skortur á fingrastyrk. Ég er með þokkalega upphandleggs og framhandleggsvöðva en fingurnir eru ekki nógu góðir.
Myndirnar hér eru af Chris Sharma sem er án efa besti klifrari í heimi. Ef þið viljið sjá eitthvað frábært, kíkið þá á þetta vídeó: http://www.youtube.com/watch?v=k45v4pLBaqs
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fátt kom á óvart
26.2.2007 | 05:15
Flott. Eins og ég hef áður nefnt er Alan Arkin vel verður óskarsins og þótt ég hafi ekki séð Dream girls þá hef ég heyrt að Jennifer Hudson sé frábær þar.
Síðan þessi frétt var skrifuð hafa nokkur stóru verðlaunanna verið veitt og ekkert komið á óvart þar:
Besti leikur karla í aðalhlutverki: Forrest Whittaker (ég sárvorkenndi Peter O'Toole, átta tilnefningar og enginn óskar)
Besti leikur konu í aðalhlutverki: Helen Mirren
Besti leikstjóri: Martin Scorsese (loksins)
Og hver verður besta myndin? Best að ég geymi það að vista þessa færslu áður en ég veit það...
THE DEPARTED
Ég ætti kannski að sjá þessa mynd.
![]() |
Jennifer Hudson og Alan Arkin fengu Óskar fyrir aukahlutverk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Óskarinn
26.2.2007 | 03:07
Jæja, þá er óskarinn hafinn og þegar búið að veita nokkur verðlaun. Reyndar er ekki búið að veita mörg verðlaun í aðal flokkunum en þó er búið að veita verðlaunin fyrir bestan leik karls í aukahlutverki. Sá óskar fór mjög verðskuldað til Alans Arkin. Ég er geysilega ánægð með það enda er hann frábær leikari og Little Miss Sunshine er dásamleg mynd. Ef þið eruð ekki búið að sjá hana þá mæli ég eindregið með því að þið gerið það við fyrsta tækifæri. Happy feet fékk svo verðlaun fyrir bestu teiknimyndina í fullri lengd.
Jæja, ætla að fara og kíkja á hverjir fá hina stóru óskarana. Flestir virðast telja að Scorsese fái bestu leikstjórn fyrir Departed, Helen Mirren fái bestan leik konu í aðalhlutverki fyrir The Queen og að Forest Whitaker fái bestan leik karls í aðalhlutverki fyrir Last King of Scotland. Annað er ekki talið eins ljóst.
Annars kemur óskarinn alltaf af og til á óvart, þótt oft séu verðlaunin fyrirsjáanleg.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gamla myndin - 3ja ára afmælið
25.2.2007 | 20:05
Mér fannst tími til kominn að setja inn nýja mynd undir heitinu 'gamla myndin'. Sérstaklega af því að pabbi sendi mér í dag þessa mynd sem mér þykir ógurlega vænt um. Hún er tekin í þriggja ára afmælinu mínu.
Efri röð frá vinstri: Lilja Aðalsteinsdóttir, ég, Þorbjörg (Obba) Ingvadóttir, Ingibjörg (Imba) Ingvadóttir, Brynhildur Pétursdóttir.
Neðri röð frá vinstri: Ásta Knútsdóttir, Aðalsteinn Már Þorsteinsson, Pétur Björgvin Þorsteinsson, Ólafur Þorbergsson og, grenjandi, Rakel Þorbergsdóttir, fréttamaður á RÚV.
Við þetta má bæta að þessi rauði gítar sem ég fékk í þriggja ára afmælisgjöf var dýrgripurinn minn og eina leikfangið sem ég hef nokkru sinnum eignast sem ég vildi ekki lofa öðrum börnum að leika sér með.
Skemmtilegar annars þessar slaufur sem stelpur höfðu í hárinu á þessum tíma.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)