Ekki klikkar Álafosslopinn

Í dag fann ég búð sem selur Álafosslopa. Bæði venjulegan og léttlopa. Þar má líka fá hið norska Fritidsgarn. Búðin er á Dunbar og Prince Edward og það tók mig um tvo tíma að labba þangað, kaupa eina dokku af hvítum léttlopa, fá mér latté og labba til baka. Og af því að ég var í svo íslensku skapi við það að finna Álafosslopann horfði ég á Spaugstofuna á netinu og borðaði kaffisúkkulaði frá Lindu. Getur ekki verið mikið íslenskara en það.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband