Ellin og rósailmur

Ég held ég sé að verða gömul. Ég kaupi stundum krem, sápur og þvíumlíkt í Fruits & Passion og um daginn fékk ég gefna smáprufu af handáburði með rósailmi. Ég ELSKA þennan handáburð. Ég dauðskammast mín fyrir það því mér hefur alltaf fundist blómailmur hæfa gömlum konum en ekki eldhressum konum á fertugsaldri. Hingað til hef ég viljað eitthvað ferskara og yngra. En sem sagt, það að vera orðin hrifin af rósailmi finnst mér svolítið skelfilegt. Bölv. handáburður. En takið eftir, þetta var bara prufa sem bráðum verður búin. Þannig að nú reynir á hvort ég fer svo og kaupi mér svona eða hvort ég leyfi þessu að deyja út!!!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rannveig Þorvaldsdóttir

Láttu vaða. Það er ekki á hverjum degi sem maður finnur handáburð sem hægt er að elska 

Rannveig Þorvaldsdóttir, 17.3.2007 kl. 15:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband