Sævar syngur á plötu
29.12.2007 | 19:17
Síðustu tvo dagana hef ég haft jóladiskana mína þrjá í spilaranum (sem tekur einmitt þrjá diska). Ljótu hálfvitana, Ellen og Álftagerðisbræður. Ljótu hálfvitarnir minna mig að sumu leyti á Spaðana, sérstaklega kassettuna sem þeir gerðu áður en þeir gáfu út geisladisk. Svolítið svipuð gleðitónlist og fyndnir textar. Ekki er ég þó frá því að textar hálfvitanna séu fyndnari.
Annars datt mér eftirfarandi í hug þegar ég hlustaði á fjórða lag disksins, Raunasaga úr fjölbýlishúsi, ljóð, texti og söngur: Sævar Sigurgeirsson:
Bekkurinn okkar í MA, sem var B-bekkur málabrautar, var mjög söngelskur og voru allir nema Sissó flugmaður í Söngfélaginu. Það var enda svo að í bekkjarpartýum var mikið sungið. Þetta var almennt mikill listabekkur því þó nokkrir gerðu tónlist að sínu framtíðarstarfi og margir voru í leiklistarklúbbnum. En Sævar söng ekki. Þótt hann væri leikandi uppi á sviði alla daga þá tók hann bara ekki þátt í söngnum (var þó held ég í söngfélaginu). Ég er ekki viss um að hann hafi neitt útskýrt það nema með því að hann langaði ekki að syngja, en auðvitað litum við öll svo á að hann væri bara vitalaglaus. Ekki svo. Á fjórða ári setti leikfélagið upp söngleikinn Gretti og þar lék Sævar Tarzan og söng hástöfum. Og viti menn, hann gat vel sungið. Nú er hann kominn á plötu og syngur bara skratti vel, þótt hann syngi ekki öll lögin sín þar (held að Toggi syngi alla vega eitt þeirra). Já, svona er nú hægt að draga rangar ályktanir.
Ég vil óska strákunum til hamingju með þessa plötu. Hún er virkilega skemmtileg.
P.S. Sævar, ef þú sérð þetta, vona að þú reiðist mér ekki þótt ég rifji nú í annað skiptið upp sögur af þér úr Menntó!
Athugasemdir
Ég skil þessi skrif á þá leið að þú sért að segja Að Hinir Ástsælu Spaðar séu hálfvita og það m.a.s. ljótir; og jafnvel Álftagerðisbræður og Ellen séu undir sömu sök seld. Fyrr má nú gagn gera !
Jóhannes Ragnarsson, 29.12.2007 kl. 21:21
Já, þú meinar að Ellen og Álftagerðisbræður séu nú ljótu hálfvitarnir...hehe. Ég sé að það má vissulega skilja það svo. En nei, ég held svei mér þá að þarna séu í raun engir hálfvitar, hvorki þeir ljótu né hinir fegri.
Kristín M. Jóhannsdóttir, 30.12.2007 kl. 00:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.