Færsluflokkur: Bloggar
Til hamingju Svandís
12.5.2009 | 17:41
Mikið er ég ánægð að heyra að Svandís skuli vera orðin umhverfisráðherra. Svandís er og hefur alltaf verið kjarnakona og ég hef fulla trú á henni í þessu embætti.
Það er annars skrítið til þess að hugsa að ég er búin að þekkja hana í nærri tuttugu ár. Svandís var aðstoðarkennari Höskuldar Þráinssonar í kúrsinum 'Inngangur að málfræði' þegar ég var á fyrsta ári í íslensku við Háskóla Íslands. Við kynntumst síðan alveg ágætlega bæði í gegnum íslenskuna og í gegnum pólitíkina. Ég þekki þar að auki pabba hennar býsna vel, og þá sérstaklega eftir að leiðir okkar lágu saman í Winnipeg fyrst eftir að ég flutti til Kanada. Frábærar manneskjur bæði tvö.
Til hamingju Svandís.
![]() |
Svandís tekur við embætti umhverfisráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Spennandi hjóltúrar framundan
7.5.2009 | 05:22
Ég á nýtt leikfang. Madison hjól frá Louis Garneau. Ég er komin heilan hring núna því hjólið hefur bara einn gír. Hef ekki átt svoleiðis hjól síðan ég var krakki. Og af hverju keypti ég hjól með aðeins einum gír? ...líklega af því að að er svo létt og skemmtilegt og frábært að hjóla á því. Og af því hversu létt það er þá er ekki svo mikið mál að hjóla upp brekkur. Og ég er satt að segja dauðfegin að þurfa ekki að vera sífellt að skipta um gíra. Ef ég hjóla reglulega á þessu hjóli um hæðótta borgina ætti ég að komast í býsna gott form.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Frábær teiknimynd - horfið endilega
2.5.2009 | 06:33
Uppáhalds smásagan mín er sagan 'Hokkítreyjan' eftir kanadíska rithöfundinn Roch Carrier. Fyrir mörgum árum var búin til teiknimynd eftir sögunni og er það Roch Carrier sjálfur sem segir söguna með sínum skemmtilega franska framburði.
Sagan er um smástrák í Quebec á dögum Maurice Richard sem án efa var besti hokkíleikmaður fimmta og sjötta áratugarins. Richard spilaði með Montreal Canadiens og var átrúnaðargoð allra smástráka í Quebec. Allir áttu treyju með númer níu á bakinu og allir vildu vera Maurice Richard.
Þegar treyja Rochs litla er orðin of lítil pantar mamma hans nýja treyju úr vörulista en því miður er það ekki rauða, hvíta og blá treyja Montreal Canadiens sem kemur upp úr kassanum heldur bláa og hvíta treyja erkifjendanna í Toronto Maple Leafs.
En ekki lesa þetta skrifl frá mér. Horfið á myndina:
Og ef ykkur fannst þetta skemmtilegt, horfið þá á nútímaútgáfu af sögunni:
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Til hamingju með daginn
1.5.2009 | 20:02
Ég vil óska öllum til hamingju með daginn. Ég er ekki búin að syngja Nallann ennþá en mun gera það áður en dagur er að kvöldi kominn. Mun líklega einnig syngja Maístjörnuna og Fram allir verkamenn. Þetta er orðið að hefð hjá mér.
Og í tilefni dagsins set ég inn mynd frá Fyrsta maí göngunni á Akureyri í dag. Mamma þarna í miðið.
![]() |
Fjölmenni í kröfugöngum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skattar, englar og djöflar
30.4.2009 | 06:14
Klukkan er ellefu að kvöldi og ég var að ljúka við kanadísku skattskýrsluna. Skiladagur er á morgun. Þetta er búið að taka mig allt kvöldið enda ógurlega flókið að fylla út þessa skýrslu. Maður þarf að borga fylkisskatt og landsskatt og allt þarf að reiknast með mismunandi prósentum o.s.frv. Skattkerfið er býsna gott hér og skattþrep eru þrjú, en mikið vildi ég að þeir lærðu af Íslendingum hvernig má einfalda útfyllinguna sjálfa.
Góðu fréttirnar eru þær að hafi ég fyllt skýrsluna rétt út (sem ég geri þó aldrei) þá skuldar skatturinn mér töluverðan pening. Hátt á tvö hundruð þúsund. Það væri nú ekki amaleg útkoma.
Og nú ætla ég að halda áfram að lesa Engla og djöfla eftir Dan Brown. Sú bók eru svo miklu betri en DaVinci lykillinn. Hlakka til að sjá myndina sem á að frumsýna eftir tvær vikur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Lítill heimur - enn og aftur (Bone Detectives)
28.4.2009 | 23:24
Ég var í heimsókn hjá vini mínum í gær og hann sýndi mér þátt sem hann hafði tekið upp í sjónvarpinu deginum áður. Þátturinn heitir 'Bone detectives' og er um náunga sem ferðast á milli staða, skoðar gamlar beinagrindur og reynir að komast að því hvernig viðkomandi lést. Ástæða þess að vinur minn tók upp þennan þátt, og sýndi mér hann, var sú að þessa vikuna var þáttastjórnandi á Íslandi.
Af því að vinur minn vissi ekki í upphafi þáttar að hann gerðist á Íslandi hafði hann ekki tekið byrjunina upp, þannig að við erum í miðju atriði þegar upptakan hefst. Á skjánum er þáttastjórnandi, leiðindagaur, og íslensk kona. Ég stari á skjáinn...bíddu...ég kalla upp yfir mig: "Þetta er hún Guðný. Við vorum saman í bekk í menntaskóla". Og jú jú, um leið og ég hef kallað þetta upp kemur titill á skjáinn...Guðný Zoega. Vini mínum fannst þetta auðvitað hrikalega fyndið enda ég þegar búin að minnast á að vera frænka Anítu Briem, farið í sturtu með Björk, verið í skóla með Hilmi Snæ, o.s.frv. o.s.frv. Og þarna erum við að horfa á fornleifaþátt og skólasystir mín birtist á skjánum.

Þetta var annars ansi athyglisverður þáttur. Það sem vini mínum fannst fyndnast var að Íslendingunum virtist öllum finnast þáttarstjórnandi algjör auli því þau horfðu á hann með þessum óræða svip sem benti helst til þess að þeim litist ekkert á heimsóknina. Ég held svei mér þá að hann hafi rétt fyrir sér í því.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bölv. leigusalinn enn og aftur
27.4.2009 | 17:31
Okkar forríki en níski leigusali hefur nú leigt út bílskúrinn í húsinu. 800 þúsund krónurnar sem hann fær nú þegar í leigu á mánuði er greinilega ekki nóg.
Í gærkvöldi tókum við eftir því að það var ljós í bílskúrnum og það logaði í alla nótt. Málið er hins vegar þetta: Hvaðan kemur rafmagnið í bílskúrnum? Við leigjendurnir í húsinu borgum fyrir rafmagnið, ekki eigandinn, og við viljum að sjálfsögðu ekki borga fyrir einhvern sem er nú að leigja bílskúrinn. Nógu hár er nú reikningurinn þegar.
Við höfum líka áhyggjur af því að sá sem leigði bílskúrinn er smiður og hann ætlar ekki að nota hann sem geymslu fyrir bíl eða bát. Ef hann ætlar að nota skúrinn sem verkstæði má búast við hamarshöggum og látum.
Ekki ánægð með þetta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Vegavinna
23.4.2009 | 16:03
Þegar ég bjó í Manitoba var talað um að árstíðirnar fjórar væru eftirfarandi:
VETUR
ENNÞÁ VETUR
ENNÞÁ HELV. VETUR
VEGAVINNA
Vetur í Vancouver eru mildari og við fáum raunveruleg haust og vor en ég uppgötvaði í morgun að sumardagurinn fyrsti var í raun vegavinnudagurinn fyrsti. Á hverjum morgni keyri ég í gegnum þrengslasvæði þar sem verið er að byggja nýja lestarstöð en í morgun var búið að bæta við tveimur stöðum þar sem verið var að grafa veginn í sundur eða laga malbikið. Og á öllum stöðum myndast raðir og maður þarf að bíða og bíða...og eins og Laddakarakter sagði gjarnan: Og bíða og bíða og bíða...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Nýtt lyf gegn feimni
22.4.2009 | 22:41
Stelpur! Ég þarf endilega að segja ykkur frá nýju lyfi sem virkar vel gegn feimni, óákveðni og tilfinningunni að þið séuð ekki nógu góðar. Segið endilega öðrum konum frá þessu. Því miður eru upplýsingarnar aðeins til á ensku eins og er.
Womens Health Alert :
Do you have feelings of inadequacy?
Do you suffer from shyness?
Do you sometimes wish you were more assertive?
If you answered yes to any of these questions, ask your doctor or pharmacist about Margaritas.
Margaritas are the safe, natural way to feel better and more confident about yourself and your actions.
Margaritas can help ease you out of your shyness and let you tell the world that you're ready and willing to do just about anything.
You will notice the benefits of Margaritas almost immediately and with a regimen of regular doses you can overcome any obstacles that prevent you from living the life you want to live.
Shyness and awkwardness will be a thing of the past and you will discover many talents you never knew you had.
Stop hiding and start living, with Margaritas.
Margaritas may not be right for everyone. Women who are pregnant or nursing should not use Margaritas.
However, women who wouldn't mind nursing or becoming pregnant are encouraged to try it.
Side effects may include:
- Dizziness, nausea, vomiting, incarceration
- Erotic lustfulness
- Loss of motor control
- Loss of clothing
- Loss of money
- Loss of virginity
- Attraction to the same sex
- Table dancing
- Headache
- Dehydration
- Dry mouth
- And a desire to sing Karaoke
WARNING:The consumption of Margaritas may make you think you are whispering when you are not.
WARNING:The consumption of Margaritas may cause you to tell your friends over and over again that you love them.
WARNING:The consumption of Margaritas may cause you to think you can sing.
WARNING: The consumption of Margaritas may make you think you can logically converse with members of the opposite sex without spitting.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Páskafrí
16.4.2009 | 03:58
Ég eyddi páskafríinu á Vancouvereyju, rétt fyrir sunnan Comox og Courtney en fyrir norðan Qualicum Beach. Við vorum 11 sem leigðum hús niðri við sjó. Þarna var heitur pottur, billjarðborð, grill...ströndin beint fyrir utan húsið þar sem selir syntu og endur syntu í hópum.
Við eyddum miklum tíma í heita pottinum, fórum í gönguferð um ævagamlan skóg þar sem elstu trén voru 800 ára, skoðuðum fossa, löbbuðum um ströndina, borðuðum góðan mat, kveiktum eld og steiktum sykurpúða.
Ég læt myndirnar tala fyrir mig.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 04:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)